Stefán Sturla Sigurjónsson

06 júlí 2010

Næs veður...

Hitabylgjan heldur áfram. Nú er 27° og spáir allt að 30° næstu daga. Þetta er nú svolítið heitt. Maður er svona á mörkunum að steikjast lifandi. Þetta hefur þó sína kosti. S.l. viku og þessa eru Adam og Anna í sundkennslu á ströndinni í Molpa. Sjórinn heitur og heitt að stíga upp úr honum... NÆS. En þegar það er svona heitt eru reiðtúrarnir frekar stuttir og heitustu dagana bara létt lónsering. Er enþá að leita að þægum góðum hestum fyrir konu sem er að byrja með íslenska hesta hérna í austurbotni. Væri gott að heyra ef þið vitið um svona hesta... mætti gjarnan vera einn skjóttur.
Bara vika í að Sandra komi til okkar þann 13. júlí.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim