tag:blogger.com,1999:blog-370581632024-03-13T03:00:54.592+02:00Stefán Sturla SigurjónssonStefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.comBlogger497125tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-17660367142918483102011-09-01T12:49:00.003+03:002011-09-01T12:53:20.860+03:00Lykklar og næsFékk lykklana að lókalinu fyrir búðina "Eyjafjallajökul" afhenda á afmælisdeginum hennar Söndru minnar. VIP opnunin verður þann 15. október. Svo allt á fullt þann 17.

Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-35804117808953132172011-08-29T22:02:00.002+03:002011-08-29T22:06:06.951+03:00Þá verður nú fjör...
Vinn hörðum höndum að því að opna "Eyjafjallajökul" um miðjan okt. Nú er bara að fara að mála, skruppa, skúra, smíða og það allt... svo smíða innréttingar. Þá að panta vörurnar og raða í hillur... Svo rosa opnunarpartí með fullt af fólki og góðum VIP gestum sem fá opnunar afslátt og tæma búðina... Þá verður nú fjör... hehehehe
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-34934965105096781572011-08-27T13:44:00.002+03:002011-08-27T13:48:04.820+03:00
Þann 9. október árið 2003 frumsýndi Svenska Teatern í Helsinki, Hellisbúan með Sixten Lundberg. Leikstjóri sýningarinnar var hafnfirðingurinn Gunnar Helgason. Það eru sem sagt átt ár síðan og en gengur Hellisbúinn fyrir fullu húsi og er að hefja sitt níunda leikár. Engin sýning hefur áður verið sýnd oftar en 300 sinnum í leikhúsinu og dregið að sér yfir 45000 gesti.

Sixten og Gunni hjartanlega til hamingju.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-80232219522829501582011-08-12T21:22:00.003+03:002011-08-12T21:37:45.924+03:00Mmmmm næs!
Í gær var dagur menningarinnar hér í Vasa. Menninganótt kalla þeir fyrirbærið á Íslandi. Þar eyða þeir miklum peningum í flugelda"sýningu"... sem allir bíða eftir :( Og bærinn iðar allur af uppákomum og eftirvæntingu... hvernig verður flugeldasýningin í ár?

Hér í Vasa upplifði maður menninguna í ró og góðu veðri. Gengum á milli safna, hlustuðum á skemmtilega tónlist, kíktum í leikhús til að sjá hvað þar verður í boði í haust. Síðan skolar ég þessu öllu saman niðu með vænum slurk af bjór á góðum pöb. Kvöldinu lauk svo með sýningu himnaguðanna, þar sem himnafestingin logði öllu í rauðgullinni ljósadýrð, við sólsetrið. Mmmmm næs!
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-74703681822258151532011-08-08T10:46:00.003+03:002011-08-08T11:02:40.278+03:00Tíminn flýgur :)
Alltof langt síðan ég setti innlegg á þennan reikning :)
Allt gott að frétta. Fórum til Íslands í lok júni. Það gekk eins og maður gerði ráð fyrir... Þurftum að byrja á því að bíða í tvo daga í Helsinki vegna yfirvinnubanns flugmanna Icelandair. Þannig að ég fór beint norður í Skagafjörð á landsmót hestamanna. Stoppaði þar í tvo daga og svo suður í Borgarfjörð á ættarmót. Þaðan beint austur á Höfn til Söndru, þar var loksins slappað af í tvodaga á indislegu heimili stóru stelpunnar minnar. Við forldrarnir vorum svo send heim á föstudagskvöldi. Hafði orð á því við Petru þegar við keyrðum yfir Múlakvísl um klukkan 21 að það væri mikið í henni. En að mér grunaði að brúin færi nokkrum tímum seinna... nei. Þannig að börnin okkar sem ætlðu að koma daginn eftir voru föst á Höfn til mánudags, en þá komu þau með flugi. Þau nutu hinsvega þess að vera öll saman fjögur EIN í fyrsta skipti.
Heimsóknir urðu miklu færri (eins og venjulega) en við vorum búin að áætla. Vona að allir okkar góðu vinir fyrirgefi okkur það :)
Sumarið búið að vera langt og heitt... sem er æðislegt eftir alltof langan og kaldan vetur.
Er núna að undirbúa að opna litla huggulega búð sem verður með íslenska vörur á boðstólnum. Ætla að vera með talsvert vöruúrval til að byrja með og sjá hvað er að seljast. Kaupi sem minnst inn, legg upp með umboðssölu. Hver vill vera með?
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-30377720172449063282011-03-14T22:48:00.004+02:002011-03-14T23:03:31.106+02:00Ertu að leita að vinnu?
Að vera í Noregi og þjálfa bestu kynbótahesta Noregs eru forréttindi. Skrítið að það skuli ekki vera biðlisti hjá Kringeland af þeim sem vilja aðeins vinna við að þjálfa og temja það besta. Hér hjá Kringeland, rétt við sænskulandamærin fyrir austan Osló, vantar góðan tamningamann og þjálfara næsta haust. Kemur vel til greina að ráða par. Góð aðstaða, frábær hross og vinnuveitandi eins og maður vill hafa hann, lipur og skemmtilegur. Stutt til allra höfuðborga í skandinavíu og frábær skíðalönd í næsta nágrenni. Ef þú veist um einhvern, láttu hann/þau/hana þá endilega hafa samband við mig eða hringja í Inge Kringeland +47 97560001
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-67265385336921285552011-03-02T23:15:00.003+02:002011-03-02T23:29:42.120+02:00Tjaldbúar
Úlalala... alveg ógeslea gaman a koma heim.

Við erum búin að vera meira og minna á skíðum síðan. Fyrst hér í Vasa svo sl. tvo daga í Seinajoki. Alveg frábært. Krakkarnir sofa í tjaldi þessa dagana... ekki úti í snjónum... nei... í stofunni. Ég kom með tjald frá Noregi sem ég gaf Adam. Hann tjaldaði í stofunni og þau A&A sofa í tjaldinu. Smá æfing fyrir sumarið. Hef trú á að þau sofi margar nætur í tjaldi í sumar. Varðhundurinn Askur sytur við tjaldið og vonar að það verði opnað svo hann fá líka að kúra inni... inni í tjaldinu...

Á morgun förum við til Tammerfors í vetrarfrísreisu. Ætlum að sofa eina nótt á hóteli og gera fullt af skemmtilegu.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-82005121924829402562011-02-23T23:35:00.005+02:002011-02-26T19:43:33.334+02:00hrossarækt hjá Kringeland
Í dag er að styttast í heimferð. Búinn að vera í Noregi við hrossatamningar og þjálfun í mánuð á búgarðinum Kringeland. Þar ræður ríkjum Inge Kringeland sem hefur stundað hrossarækt sl. 15 ár. Hér er línan að mestu ættuð frá Miðsitju. Árangurinn í ræktuninni er held ég eins dæmi. Sl. tvö ár hafa hrossin hans staðið í efstu sætum kynbótahrossa í öllum aldursflokkum hér í Noregi. Það eru því ákaflega spennandi og skemmtileg hross sem ég er að vinna með. Það eru hins vegar ár, fleiri en eitt og fleiri en tvö síðan ég hætti að keppa á hrossum og ætla mér ekki að byrja á því aftur... ekki íþróttakeppni... en get alveg hugsað mér að sýna kynbótahross, hver veit. Tveir af öflugustu stóðhestum Noregs, Sævar 7v. undan Keili frá Miðsitju og Spori 5v. undan Skorra frá Blönduósi eru í eigu Kringeland. Þessir hestar eru nú hjá Stian Pedersen, margföldum meistara í hestaíþróttum, verðlaunahafa í gæðingakeppnum og sýnt mikinn fjölda af topp kynbótahrossum. Ég vænti þess að þessir meistarar, Sævar, Spori og Stina láti að sér kveða í sumar. Svo eru öll hin hrossin...
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-44373760473526972302011-01-30T16:09:00.002+02:002011-01-30T16:13:34.903+02:00Undarlegt.Hann Vignir vinur minn sagði við mig um daginn þegar við vorum að ræða lífið...
"Undaglegt hvað maður lifir stutt og er dauður lengi".Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-68761843136908418242011-01-27T21:42:00.003+02:002011-01-27T21:54:41.419+02:00Og hananú
Þá er ég kominn til Noregs. Úr -20° í -19° svo þetta er bara í góðu lagi. Reindar var BARA -14° í dag fyrsta vinnudaginn, sem var inni dagur. Lýst alveg ljómandi á þetta allt saman. Flott hross og vel ættuð. En hér eru ræktuð Miðsitjuhross. Flottir folar og velgerðar merar. Aðstaðan bara í góðu lagi. NEMA að hér var á undan mér íslendingur sem virðist halda að best sé að vinna við hesta blindfullur. Og umgengnin í hesthúsinu, hnakkageymslunni og herbergið hans er alveg ótrúlega subbó. Það var ekki hægt að stíga á gólfið í hnakkageymslunni. Hann bara fleygði beyslum, múlum, ábreyðum, fóðurbæti, skeifum... já bara öllu á gólfið. Skil ekki fólk sem getur unnið svona. Bara skil það ekki. Það fer nefnilega jafn mikill tími í að halda hlutunum í reglu eins og óreglu. Tala nú ekki um hvað það fer mikið betur með, að hengja upp eftir sig og ganga frá. En Nú er komin röð og regla á hnakkageymsluna, hesthúsið sópað og sjænað og þannig verður það þennan mánuð sem ég verð hér. Og hananú... sagði... eða þannig.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-9888924816705402932011-01-20T20:12:00.003+02:002011-01-27T21:42:17.766+02:00Tamnigar í Noregi.
Tilbreyting hjá mér. Er búinn að ganga frá því að fara til Inge Kringeland í Noregi að temja og þjálfa hesta. Inge er með búgarð rétt við sænsku landamærin. Um 90 km frá Osló. Gerði samning við hann um að vera 4-5 vikur til að byrja með. Í lok febrúar skoðum við hvort framhald verði á og ég haldi áfram fram í miðjan apríl.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-18589553780153630622011-01-14T12:31:00.004+02:002011-01-14T12:43:12.788+02:00Já og nei...
Nú bíð ég eftir svari fá Noregi. Svaraði sjálfur fyrirspurn þaðan um að koma og temja... hesta... jákvætt, nú er það spurningin um launin. Get farið strax, því það er ekkert fast framundan hjá mér fyrr en í lok apríl. Þá æfum við Teater Loki upp Græna landið sem verður sýnt í samstarfi við Svenska teater í Helsinki. Kanski maður fari svo aftur til Noregs. Hver veit? Þar er talað tungumál sem er nokkurn vegin skiljanlegt. Get líka notað tækifærið og heimsótt leikhús og leikhússtjóra í Noregi, sem ég hef verið í sambandi við.
Ég sendi reyndar tilboð í uppsetningu á sæluvikuleikriti leikfélags Sauðárkróks. En stjórnin valdi annan leikstjóra. Lukka til LS.
Sit nú við og skrifa leikgerð eftir finnskri bók, sem er alger snild. Reyndar hefur bókin verið kvikmynduð og sú mynd hlotið margar viðurkenningar.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-75839656293105553012011-01-10T19:47:00.003+02:002011-01-10T19:57:21.092+02:00Verkefni
Veit ekki alveg hvað ég á að gera. Afþakkaði pent að leikstýra verki haustið 2012 hjá Wasa teater. Þetta var nýskrifað leikrit og hugmyndin var að það ætti að fara á stóra sviðið. Leikhússtjórinn sagði mér á fundi í dag að hún ætlaði að leita betur að verki. Hún bað mig um að taka frá haustið 2012 fyrir Wasa teater. Ég lofaði engu. Hún er reyndar létt stress þessa dagana vegna frumsýningar á eigin verki 15. janúar, sem jafnframt er fyrsta frumsýning hennar sem leikhússtjóri. Við ætlum að ræða betur saman eftir frummarann hjá henni. Erum að bræða saman verkefnalista, þar sem ég leikstýri hugsanlega þremur verkum árin 2011 og 12.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-13803913474079455592011-01-04T16:54:00.003+02:002011-01-04T17:10:35.748+02:00Hann pabbi minn
Hann pabbi minn varð 79 ára þann 3. janúar. Einhversstaðar las ég "allir þessir dagar, öll þessi ár... ekki vissi ég að þetta væri lífið". Það var hann pabbi minn sem stuðlaði að því að ég nota ætíð bæði nöfnin mín. Þannig var að þegar ég var knapi kappreiðarhrossa árin fyrir tvítugt var pabbi blaðamaður með hestafréttir sem sérgrein. Hann var reyndar fyrsti penninn sem var fastráðinn á íslenskt dagblað með hestafréttir sem sérgrein. Seinna stofnaði hann ásamt fleirum hestafréttablaðið Eiðfaxa og var fyrsti ritstjóri þess. Hvort það var í Eiðfaxa eða áður man ég ekki... en hann þurfti nokkrum sinnum að segja frá árangri mínum á vellinum. Hann valdi þá að skrifa ávalt Stefán Sturla. Hann sagði mér að nota ætíð bæði nöfnin því þau væru hljómfögur og hefðu fallegan hrynjandi. Pabbi hefur oft áðlagt mér og ef ég hef verið þeirrar gjæfu að fara eftir ráðum hans hefur það alltaf leitt gott af sér.
Kæri pabbi minn, margt á ég þér að þakka, en lífið mest.
Eigðu frábæran dag og hlakka til að fá þig í sumarvinnu.Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-36185961082959185152011-01-01T22:26:00.004+02:002011-01-01T22:58:50.780+02:00Indislegt ár að baki
Nýtt ár er gengið í garð. Enginn veit hvað það á eftir að sýna okkur, hvað manneskjan á eftir að upplifa og jörðin að gefa af sér eða taka. Hitt er ljóst hvað liðið er. Árið tuttugutíu var í langflesta staði gott ár fyrir okkur, mig, ástina mína og börnin okkar. Skemmtilg verkefni og góð útkoma þeirra get ég sagt að einkenni alla meðlimi fjölskyldunnar. Sandra Björg er orðin formaður lionsklúbbsins Kolgrímu á Höfn, sló í gegn í söngleik haustsins og vinnur á fullu fyrir háskólasetrið á Höfn. Sólveig jr. útskrifaðist frá Iðnskólanum og er komin til Barcelóna í framhaldsnám í fatahönnun. Áttum indisleg jól með henni og Hafþóri. Adam Thor lék í revyu uppsetningu minni í Sundom í byrjun ársins og stóð sig auðvitað vel. Dansinn og tónlistin, skíðin og fótboltinn áttu hug hans allan á árinu sem var toppað með því að fara á leik með Barcelóna á Kamp Nou. Svo gengur honum svo vel í skólanum. Þá er það gullinstjarnan mín hún Anna Alina. Hún byrjaði að spila fótbolta í vor og varð með liði sínu Sundom UF í öðrusæti félagsliða frá austurbotni í sínum aldursflokki. Sl. tvö ár hefur hún verið í myndlistar- og sköpunarnámi með skólanum. Þannig að allar mjólkurfernur, kassar og pappír, efni og aðrir afgangar verða að listaverkum, húsum eða öðru nytsamlegu í meðferð hennar. Svo byrjaði hún á árinu að fara í langa útreiðartúra á Sikli, hestakona og dýravinur af guðsnáð. Sagði mér í lok ársins að hún ætli að verða dýralæknir.
Ákalla guðina um að árið tuttuguellefu færi börnunum mín hamingju, orku, sköpun og gleði, þá verð ég hamingjusamur.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-29210529941575844262010-12-28T22:17:00.002+02:002010-12-28T22:21:26.149+02:00Jólin í Barcelóna
Við komum heim frá Barcelóna sl. nótt. Það var indislegt að vera hjá Sollu og Haffa. Þar var um 10 til 14 stiga hiti. Við fórum á fótboltaleik með FCBarcelóna og sáum öll goðin læv. Lentum í mjög sérstakri Tænlenskri messu á jóladag í hinni stórkostlegu kirkju Sagrada familia sem er eitt listaverka Gaudi. Auðvita var rölt á Römblunni, þar sem upptroðarar og listamenn skemmtu vegfarendum. Og svo gengu þau S og H með okkur um gamlabæinn, sem er ótrúlega flottur. Jólin voru, þrátt fyrir allt þetta, afslöppuð og sveim mér ef þetta voru ekki bara ein indislegustu jól sem við höfum upplifað. Að sjálfsögðu var enginn til í að fara heim í frystikistuna í Sundom. Hér er nú um 20 stiga frost og á að verða um 30 á gamlárskvöld. En það er óskaplega fallegt veður þrátt fyrir frostið. Og gott að koma heim þegar Askur, Morris og hestarnir tóku svo vel á móti okkur.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-45511863932063088872010-12-14T16:57:00.003+02:002010-12-14T20:09:47.195+02:00Skemmtilegur persónuleiki.
Alveg er hann dæmalaus hann Völundur. Hörku skemmtilegur klár. Svívandi brokk og skemmtilega þjálfað hægt stökk. Töltið mjúkt en vantar jafnvægi og meiri ferð. Það kemur með þjálfuninni. En hann er ótrúlegur sóði í stíunni. Eftir að hann mígur þá leggst hann oftast í hlandið og veltir sér uppúr því, eins og maður sér stundum hunda gera. Hann liggur alltaf marflatur eins og skotinn... þannig að það er verk að halda honum hreinum... eins gott að hann er svartur. Svo á reið þá gnístir hann saman jöxlunum. Ég er að reyna að venja hann af því með að trufla hann þegar hann byrjar á þessu. T.d. með því að svegja hann eða stopp. Er ekki frá því að þetta hafi minkað. Gæti vel trúað því að svona kækur geti skapað spennu í hálsinum og jafnvel hausverk. Sem aftur leiðir til viðkvæmni eða smá stress. Er að pæla í að prufa mjög þykk mél, sjá hvort þau hafi áhrif á þennan leiðinda vana hjá klárnum.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-8414446559302548502010-12-13T10:05:00.003+02:002010-12-13T10:22:33.475+02:00Góð hvattning.
Eftir hina hrikalegu terroráras í Stokkhólmi um helgina finnst mér við hæfi að vekja athyggli á orðum Fredriks Reinfeldt forsætisráðherra svía. "Brist på svar kan leda till spekulationer av olika slag. Det i sin tur kan leda till slutsatser som sätter bild som sedan är svårt att ändra. Ha tålamod med demokratin och låt rättsväsendet arbeta", lauslega þítt segir hann, Ófullnægjandi upplýsingar geta leitt til ólíkra vangaveltna. Sem getur haft þær afleiðingar að það verði erfitt að breita niðurstöðunni. Hafið þolinmæði með líðræðinu og leifið réttarrannsakendum að vinna. Getur einhver hugsað sér að forseti USA, Kína, N og S Kóreu, Frakklands, Bretlands já næstum hvaða ríkis sem er, hvetti þjóð sína svona. Ég á erfit með að trúa því.
Vona að stjórnmálamenn í heiminum tileinki sér þessi orð Fredriks Reinfeldt.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-62288800884372091472010-12-11T23:14:00.003+02:002010-12-11T23:38:42.431+02:00Vilji er allt sem þarf...
Í dag, laugardag, opnaði skíðasvæðið í Öjberget. Þetta er náttúrulega draumur í dós. 800 metrar í skíðasvæðið, hesthúsið og stóra nýja gerðið 50 metrar frá útihurðinni. Við vorum að sjálfsögðu mætt og skíðuðum í tvotíma í hinu hrikalega 50 metra háa fjalli... en eins og sumir vita þíðir sænska orðið "berg" fjall. Svo voru það hestarnir og síðan afmælisveisla. Gengur hægt að klára að flísaleggja sturtuklefann niðri. Mottóið í dag er "klárast þegar tími er til, þetta fer örugglega ekki frá þér", finnst þetta gott mottó.
Er núna að lesa nýskrifað leikrit sem ég var beðinn um að skoða hvort mér findist áhugavert til að leikstýra haustið 2012. Er búinn að segja já við að leikstýra tveimur leikritum, annað haustið 2011 og hitt 2012. Þarf að funda um þetta nýja verk með höfundinum sem hefur skrifað mikið fyrir áhugamannaleikfélög. Því miður skrifar hann þetta nýja leikrit þannig að persónur eru einfaldar og þær segja frá hvað var að gerast frekar en að sýna það... En megin fléttan, hugmyndin, er góð. Þarf bara að vinna miklu betur í leikritinu. Það er spurning hvort það sé vilji til þess.
En eftir áramót til vors er algerlega óráðið hjá mér... skoða allt, ef þú veist um eitthvað:-)
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-60592394116564683272010-12-04T21:06:00.000+02:002010-12-06T22:40:36.667+02:00Gullinstjarnan
Gullinstjarnan mín varð átta ára í gær 5. desember. Við höfum það fyrir venju að halda uppá afmælin. Það komu 13 stelpur í veisluna til Önnu... og það var mikið fjör. Auðvita hlaðið borð af góðgæti sem mamman töfraði fram og síðan leikir. Í lokin kom svo sögumaður og sagði söguna um hana Rauðhettu... á svolítið annan hátt en skvísurnar höfðu áður heyrt hana. Eftir partíið fórum við svo út að borða... önnur venja sem við höfum komið okkur upp... afmælisbarnið fær að velja sér veitingastað... enþá eru það hamborgarastaðir. Á leiðinni þangað datt uppúr afmælisbarninu... "Hvað það er skrítið að vera orðin átta ára, maður finnur það í líkamanum að maður er eldri".
Flott sagt og gildir um alla afmælisdaga.

Í dag 6. desemer, er svo þjóðhátíðardagur Finna. Við vorum boðin til Önnu Grönblom, leikkonu í mat. Hún bauð uppá æðislega elgsteik og alles. Þannig að um þessa helgi voru tvær stórveislur.
Elsku besta gullinstjarnan mín, þitt ljós er fallegt og megi það skína um mörg ókomin ár... þinn pabbi.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-48752016979507030892010-12-04T20:51:00.004+02:002010-12-04T21:06:33.086+02:00Þetta vanalega...
Djö... hvað þessi fésbók tekur tímann frá manni! Reyni að vera stutt inn og bara að svara og komast í samband við fólk. En þvílíkt samskiptasull. Já , jæja hvað um það vissi að FB væri svona og hafði þess vegna verið tregur á að skrá mig þangað. Verð samt að viðurkenna að maður er í ótrúlegu sambandi við umheiminn. FB er eins og Gróa gamla, það sem sett er þarna inn fer eins og eldur um heiminn og fréttist. Enda eru markaðsstjórar yfir sig hrifnir af þessari leið í markaðssetningu. Frétti af rithöfundi sem opnaði síðu með væntanlegri bók sinni. Höfundurinn létt alltaf eitthvað spennandi út á netið og pælingar. Áður en bókin var komin í prentsmiðju var búið að selja 500 eintök. Þetta var reindar matreiðslubók... en só?

Annars gengur lífið sinn vana... þú veis... hér í Sundom. Járnaði Sikil í gær. Fór að ráðum mömmu og tók hann rosalega niður á tána að aftan. Hann var orðinn svo hliðstæður hjá Önnu. Fór svo á hann í dag. Allt annar klár. Tölti bara feikna vel og kominn smá vilji. Anna hefur reindar verið að kvarta svolítið undan honum. Hann vill orðið fara hraðar en hún. Þarf aðeins að laga hann til svo hann hlíði henni betur, sérstaklega í beysli.

Annan á afmæli á morgun... úllala og bara 13 stelpur í partí.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-17107096759538361512010-11-27T20:40:00.004+02:002010-11-27T21:02:34.512+02:00Madama Jólasveinn
Í dag er frumsýning á Madama Butterfly í Malmö óperunni. Svo sem ekki nein stórfrétt, því það er alltaf verið að sýna þessa frábæru óperu sem er eftir Puccini, nema hvað að Ilkka Palionemi vinur minn, og sá sem lýsti bæði Ofviðrið og Græna landið sem ég setti upp, lýsir þessa sýningu. Hann er einn allra fremsti ljósahönnuður finna og hefur sérhæft sig í óperum. Ilkka er deildarstjóri ljósahönnunardeildar Finnska listaháskólans í Helsinki. Ég óska vini mínum til hamingju með daginn.
Á morgun er fyrsti sunnudagurinn í aðventu, sem þíðir að "lilla jul" litlu jólin eru í dag. Já þannig er það hér í Finnlandi. Þá kemur jólasveinninn með smá gjafir til krakkanna. Hann rífur upp hurðina og kastar inn poka með gjöfunum og hrópar "fins nokkra snella barn här" er nokkur þæg börn hérna? Svo ríkur hann út með látum og hverfur í myrkrið. Auðvitað reina krakkarnir að ná honum. Það er því búið að vera bið í kvöld eftir kallinum. Hann kom... en ég missti af honum. Var í hesthúsinu einmitt þegar hann kom... sjitt!!! Hefði örugglega hlaupið kallinn uppi til að tékka hvort þetta sé hurðaskellir að villast í Finnlandi.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-73638533844581690302010-11-20T22:21:00.003+02:002010-11-20T22:27:23.837+02:00Wcið er notalegt...
Fyrir ykkur sem bíðið á vesalings öndinni, standandi eða hvernig sem þið farið nú að því, þá skelli ég hérna inn mynd af wc herberginu á fyrstuhæðinni. Þar sem ég hef haldið mig meira og minna sl. daga. Panel 1,10 m hátt uppá vegginn, veggfóður þar fyrir ofan og flísar á gólfinu. Allt svolítið hrátt enþá, en þetta mjakast.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-2131310971213989292010-11-19T22:55:00.003+02:002010-11-19T23:06:06.941+02:0019.11.1999 sérstakur dagur...
Prinsinn minn varð 11 ára í dag. Þetta hafa bara verið indisleg ellefu ár með honum. Áhuginn á lífinu og öllu í kringum sig, einkennir Adam. Hann hefur stórt og gott hjarta sem nær til allra. Þess vegna var hann valinn besti vinurinn af bekknum sínum sl. vor. Sumir af hans bestu vinum segjast ekki skilja af hverju hann sé svona vinsæll og allar stelpurna séu skotnar í honum, en ekki þeim. Adam segir að það sæe stundum of mikið.. td. þegar þær elta hann til að fá að strjúka hann um vangann... hann sé með svo slétta og mjúka húð. En þannig er sálin líka... þess vegna er hann svona vinsæll. Einlægni og góðmennska er það sem gildir í lífinu. Þannig hef ég reint að leiða börnin mín áfram. Og það hefur sínt sig að með þetta að leiðarljósi líður manni vel og nær langt.
Elsku besti prinsinn minn, til hamingju með að byrja annan tugin í lífinu.Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-37058163.post-32755917619999079772010-11-18T21:51:00.003+02:002010-11-18T22:03:06.117+02:00Þetta æðislega flug.
Sl. tvo dag er ég búinn að vera að vinna heima. Þar er af nógu að taka. Enþá að dunda á klósettinu. Langir dagar þar... hehehehehe. Svo að klára að járna gæðingana á vetrarskeifur, því hér er snór og frost. Þannig að það er stórhættulegt að hafa klárana á sléttum. Já, já og það fer tími í fimm hesta á húsi... Þetta er algert æði. Skila þremur af mér efitr viku. Þá fara þeir heim til Närpes.

Erum að byrja að undirbúa revíuna eftir áramót. Er búinn að lofa að hjálpa til, svona svipað og í fyrra. Við Lassi Hjelt verðum saman í að leiða hópinn. Ekki stöðug leikstjórn heldur komum og stillum strengina eftir þörfum.

Svo á Adam Thor afmæli á morgun 19. október, ellefu ára... táningur á næsta ári... úlalala... tíminn flýgur... og það er alveg æðislegt flug.
Stefán Sturla Sigurjónssonhttp://www.blogger.com/profile/08036695374272374802noreply@blogger.com0