Stefán Sturla Sigurjónsson

28 maí 2010

Sælll... djók!

Djók... sem virkar. Þannig lít ég á framboð JG. Pönsið sem svo margir bíða eftir er... borgarstjórastóllinn. Hvað er findnara en það? En hver segir að góður brandari geti ekki síðan orðið eitthvað allt annað. Til að geta skemmt fólki og setja saman hugsanir í handrit, þarf virkann haus og hugmyndir. Hver efast um að JG hafi þær.

Bláum sjálftökumönnum vil ég líkja við sjóræningja og kjósendum þeirra líki ég við háseta á fúadallinum. Flokkurinn er og verður ekkert annað en ...sjóræningjaflokkur...
Samfylkingin er ekki að gera neitt... og fellur í þá gryfju að láta kerfið stjórna í staðin fyrir að stokka það upp. Kerfin eru stjónmálamannanna verk.
Vinstri grænir eru búnir að sýna á sér hlið ósamlindis og óheilindis hvert gegn öðru... getur maður treyst svoleiðis fólki?
Framsóknarmenn eru bullur áhugaleysis, dómgreindaleysis og siðleysis. Flokkurinn er svo gegnum rotinn að sjálfur Sjálfstæðisflokkurinn verður fölblár í samanburði.

Þetta er allt eitt djók... Þess vegna treysti ég besta grínaranum fyrir djókinu.

1 Ummæli:

  • Þann 4:26 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Sæll meistari - jú jú ég er 100% sammála þér varðandi flokkana en samt sem áður er þetta allt bölvað djók og mesta djókið er sjálfstæðisflokkurinn.
    kv.abs

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim