Stefán Sturla Sigurjónsson

09 október 2009

Hugsið ykkur...

Hugsið ykkur... að fyrrverandi menntamálaráðherra hafi geð í sér að telja einu leiðina til að koma á jafnræði í samfélaginu sé að Sjálfstæðisflokkurinn komi að ríkisstjórninni.
Hugsið ykkur... að þessi sami fyrrverandi ráðherra er gift einum af sjálftökumönnunum í bankakerfinu.
Hugsið ykkur... að fyrir þá peninga byggði þessi fyrrverandi menntamálaráðherra eitt glæsilegasta hesthús með reiðhöll og alles í Hafnarfirði.
Hugsið ykkur... að þessi fyrrverandi ráðherra er bara ein af toppunum í Sjálfstæðisflokknum, hvernig er siðferðið hjá hinum í flokknum?
Hugsið ykkur... það eru enþá til einstaklingar úti í samfélaginu sem treysta þessu fólki til að stjórna landinu.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim