Stefán Sturla Sigurjónsson

28 júlí 2009

Listin að ríða rétt.

Nú er ég með reiðnámskeið hérna í Sundom. Fjórar fræknar konur sem ég hef verið að þjálfa í að ríða s.l. tvö ár. Nóg að gera hjá mér. Er ekki mormóni heldur reiðkennari. Þær eru að ná nokkuð góðum tökum á reiðlistinni, svo ég er bara ánægður með árangurinn. Á morgun er frídagur hjá þeim en svo tökum við lokahnikkinn á fimmtudaginn og eftir reiðtímann munum við Petra bjóða uppá smá samverustundi með þeim öllum í "Tölt gården". Nafn sem mér finnst passa vel við litla búgarðinn okkar.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim