Raisa til sölu
Við ákváðum í vetur að losa okkur við Raisu. Hvers vegna? Nú við notum bátinn ekki mikið. Í fyrra fór ég eina ferð á honum, einn... Svo notkunin er langt frá því að vera viðunandi. Hins vegar má ætla að við notum hestana meira því munum við selja bátinn og leggja meira uppúr hestasportinu. Loksins erum við búin að Raisu til Molpe þar sem við geymdum hana inn í vetur. Framtakið alveg að drepa mann, Vona að sumarið verði langt og einhver bíti á agnið. Báturinn kominn á hlaðið og auglýsing í blaðinu um helgina. 3500 evrur takk fyrir. Það sama og við borguðum fyrir hann fyrir rúmum tveimur árum. Þá var þetta um 3oo.ooo kall íslenskar. Allt annað uppá teningnum núna, báturinn á sama verði hér en hefur hækkað í tæpar 600.000 þúsund krónur takk fyrir.
1 Ummæli:
Þann 5:13 e.h. , Nafnlaus sagði...
Ertu búinn að selja bátinn ???
kveðja Smári
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim