Stefán Sturla Sigurjónsson

31 júlí 2009

Í minningu goðs

Þú varst örugglega einn áhrifamesti listamaður sögunnar. Þín vegna urðu músikvideo að því sem þau eru í dag, eða að minnstakosti varst þú alger frumkvöðull á því sviði. Fötin sem þú valdir að klæðast urðu oftar en ekki að tískufyrirbrigði, reyndar eins og nánast allt þitt líf. Á tónleikum innleiddir þú alltaf eitthvað nýtt og er þar kanski efst á blaði margra moon gangan þín. Sumir segja að danssporin þín hafi verið upphafið að streetdansinum. Þú ert ótvíræður konungur poppsins. Og sennilega einn mesti furðufugl tónlistarsögunnar og er þar af nógu að taka. Ég skil samt aldrei hvernig þér datt í hug að fara að laga til sköpunarverkið sem móðir þín lagði til. Varstu aldrei hræddur um að röddin breittist eða jafnvel hyrfi við allar þessar fixeringar? Tónlistin þín er flott og einlæg, og sumar melodíurnar sem kannski eru ekki mest spilaðar óendanlega fallegar. Kæmi mér ekki á óvart að sinfóníuhljómsveitir eigi eftir að taka lögin þín og útsetja þau rétt eins gert hefur verið við The Beatles og ABBA lögin. En eins og svo oft með snillinga þá vastu bara fínn meðan þú lifðir, en núna virðist þú ætla að keyra gjörsamlega yfir mann. Veist að þau Adam og Anna hlusta ekki á neitt nema Michael Jackson. Þau vita ALLT um þig enda er netið að springa af upplýsingum, greinum og öllu um undarlegt líf þitt. Það nýjasta að þú sért komin til Undralands og gangir þar ljóslifandi, rétt eins og Pétur vinur þinn Pan.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim