Stefán Sturla Sigurjónsson

10 mars 2009

Hlakka til að fá stóru stelpurna mína í heimsókn.

Það er mikil tilhlökkun hjá Önnu og Adam, mér og Petru. Stóru systurnar ætla að koma í vor í afmæli kallsins. Tengdasonurinn fær að koma með þeim, vona ég. Ég verð þá að fara með hann í eitthvað spennandi. Kannski gokart eða sjóskíði. Svo verður náttúrulega grillað og borðað mikið af góðum mat, hann er rosalega flinkur í því. Ætla rétt að vona að ég verði búinn að smíða pallinn... Sandra þarf að sjá eitthvað spennandi í ferðaþjónustunni, þá er skerjagarðurinn og Replot eitthvað fyrir hana. Og fatahönnuðurinn minn hún Solla verður að fá finnsku hönnunina beint í æð. Þá er bara að fara að vinna að þessu. Djö.... hlakka ég til.

1 Ummæli:

  • Þann 11:25 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Ég hlakka líka alveg rosalega mikið til :)
    Þín Sandra

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim