Stefán Sturla Sigurjónsson

14 október 2008

Leikfélag Sauðárkróks á bullandi skriði

Pétur Pan á bullandi skriði. Rennsli í gær með öllu sem var tilbúið. Vantaði ekki mikið uppá. Leikararnir standa sig framúrskarandi vel. Ég er með aldeilis frábært tæknilið. Ein manneskja á þó mestan heiður skilið. Það er formaður félagsins hún Siva eða Sigurveig Dögg eins og hún var skírð. Hún heldur þessu saman eins og herforingi og vinnur eins og skepna. Þessi kona á skilið menningarverðlaun Skagafjarðar fyrir óeigingjart starf í þágu menningar. Veit ekki um annað áhugaleikfélag sem heldur úti starfsemi með tveimur sýningum ár eftir ár. Þetta er áhugamennska sem er ótrúlega mikils virði fyrir alla. Nú þegar fólk þarf að endur forgangsraða og klippa sig niður úr greinum ofneyslunnar og færa sig um set í lífsins tré og gefa lífinu séns. Ættu þeir sem fara í naflaskoðun að gefa félagsstarfinu gaum og tíma. Félagsstarf eru ekki bara íþróttir. Að starfa með leikfélagi gefur einstaklingum mikinn andlegann þroska.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim