Stefán Sturla Sigurjónsson

01 október 2008

Pétur Pan

Gengur vel með Pétur Pan á Króknum. Farin að koma mynd á sýninguna og allir áhugasamir. Ég hef verið með æfingar frá 17 til 21. Það er alveg ótrúlegt hvað sá tími nýtist miklu betur en að vera seint á kvöldin. Fullorðnir og krakkar eru enn í stuði klukkan fimm. Hef tvískipt æfingunum. Fyrra hollið frá 17:00 til 19:00 það seinna frá 19:00 til 21:00. Þetta gefst vel og allir halda fullri einbeitingu. Frumsýning klukkan 17:00 laugardaginn 18. október. Vona að ég sjá sem flesta úr ættinni og auðvitað eru hinir velkomnir líka.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim