Stefán Sturla Sigurjónsson

10 mars 2008

Vitnisburður Önnu

Vorum að koma frá foreldraviðtali úr leikskólanum hennar Önnu. Þessi indislega prinsessa fékk líka svona æðislegann vitnisburð. Hún er dugleg og sjálfstæð með mikla réttlætiskennd. Okkur var sagt að þegar hún segði frá atburðum eða uppákomum í samskiptum við hina krakkana eða annarstaðar, væri alltaf tekið mark á frásögnum hennar. Það væri reyndar ekki alltaf svo með krakka á hennar aldri. Svo ef henni verður á þá tekur hún hlutina mjög nærri sér.

Þetta voru svo sem engar fréttir fyrir okkur en alltaf gaman að fá svona staðfestingu... í samnburði við aðra krakka. Loka orðin voru... "Þið eruð heppin að eiga barn eins og Önnu, mikið vildi ég eiga svona stelpu." Indislegt ekki satt?

2 Ummæli:

  • Þann 4:00 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    jih...það er ekkert annað :) Ekki leiðinlegt að heyra svona lagað.
    -- svo sem engar fréttir hehe, við vitum alveg hversu meiri háttar þau eru :)

    Kossar til allra, Sakn sakn
    Þín solla

     
  • Þann 7:34 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Litla sæta prinsessan,
    gaman að heyra svona fréttir :)

    Ég hlakka til að sjá þig elsku pabbi þegar þú kemur heim, vonandi verð ég ekki allan tíman fyrir norðan :)

    knús knús
    Sandra

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim