Á leið til Íslands.
Leikhúsfræðideild sænskumælandi listaháskólans í Vasa hafði samband við mig í gær og bauð mér að vera leiðsögumaður með útskriftarhópi deildarinnar. Já ferðinni er heitið til Íslands 4. til 11. apríl nk. Til að fræðast um leikhús og leiklistarkennslu í grunnskólum. Ég þakkaði pent og tók starfið að mér. Þessi ferð er hluti af náminu svo þau eiga að gera plan fyrir ferðina sjálf, ég verð því bara hjálparhella með hópnum.
1 Ummæli:
Þann 11:54 f.h. , Nafnlaus sagði...
JEIJ æði gæði! hlakka til að sjá þig paps :)
Þín solla
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim