Stefán Sturla Sigurjónsson

22 febrúar 2008

Sport frí í Vuokatti.

Fjölskyldan er á leið til Vuokatti sem er um 4 klukkutíma keyrsla frá Vasa og norður í landið. Þar er skíðaparadís og nægur snjór. Förum með vinafólki okkar á tveimur bílum. Sendiferðabíl og okkar 7 manna Ford Galaxy. Þannig að það verður nóg pláss fyrir allar töskurnar, skíðin, brettin, sleðana og skó og ég held að ég gleymi einhverju sem ég vona að verði með í sendiferðabílnum. Ég verð með tölvuna með mér svo kannski koma myndir á kvöldin. Við verðum á Hótel RadissonSAS sem er nýtt með öllu, ég meina öllu. Brekkurnar eru svo sem ekkert Hlíðarfjall en virka samt.

1 Ummæli:

  • Þann 3:17 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Oh hvað ég vildi að ég væri með ykkur!

    Góða skemmtun :)

    Sandra

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim