Stefán Sturla Sigurjónsson

16 febrúar 2008

Hvað á að gera um helgina?

Af okkur er svo sem ekkert að frétta... engar fréttir eru góðarfréttir, hef ég heyrt. Við erum að gera því skóna að fara norður í land um næstu helgi í skíðaferð, (þá er sportfrí í skólunum) fara í fjöllin og snjóinn. Þetta er um fjögura tíma keyrsla frá Vasa. Skrítið á samatíma í fyrra var allt á kafi í snjó hérna og 25° frost. Nú er nánast enginn snjór og hiti um frostmark. Þessa helgi ætlum við að eiða helginni á skautum með smáfólkinu. Þau eru gjörsamlega búin að stinga okkur fullornu af í færni á skautum. Það þarf að gera eitthvað í því.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim