Góður tími.
Þetta er búin að vera frábær vika hjá okkur Önnu. Adam og Petra koma í nótt (laugardagsnótt) heim frá Ammarnesi í Svíþjóð þar sem þau eru búin að vera í viku. Þetta var líka fyrsta vikan mín í vinnu hjá Björn bróður Petru. Er í fínni þjálfun með hamarinn eftir að hafa tekið útihúsið í gegn og innréttað helminginn sem hesthús og hinn helmingurinn er að verða tilbúinn sem almenn vinnuaðstaða fyrir fjölskylduna.
Ég finn það að það er nauðsynlegt að vera stundum bara einn með öðru barninu. Allt er afslappaðra og maður er miklu nánari eftir svona samverustund. Kannski það sama gildir um tíma með frúnni... Kannski ætti maður að prófa það.
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim