Hönnun í Barcelona
Hún Solla mín flaug inní hönnunarskóla í Barcelona. Og beint á annað árið. Þannig að þau Hafþór munu flytja til Spánar næsta haust. Þar með eru þau flutt frá Íslandi og ég á varla von á að þau komi aftur þangað nema sem gestir... hver veit! Ég veit hins vegar að á þessum bæ er búið að ákveða að halda jólin í Barcelona næst. Frá Tammerfors í Finnlandi flýgur Rayanair til Barcelona og AirBalticum byrja að fljúga frá Finnlandi til Barcelona í vor. Þeir eru að bjóða ferðir til Spánar á eina til hundrað evrur með skatti. Þannig að það getur verið ódýrara að fljúga til Barcelona en að keyra þessa tíu kílómetra frá Sundom til Vasa.
Elsku Solla mín við erum svo stolt af þér.
1 Ummæli:
Þann 5:37 e.h. , Nafnlaus sagði...
Takk fyrir pabbsen :)
Góða skemmtun á skíðum :)
Solla
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim