Stefán Sturla Sigurjónsson

04 desember 2009

Stórafmæli.

Afmælisveislan hans Adams var í kvöld. Hann var lengi að ákveða hvernig hann vildi haga þessu partíi og hverjum ætti að bjóða. En sem sagt í kvöld var partíið. Hófst með móttöku og útdeilingu gjafa. Þá var boðið í reiðtúr og heitt kakó. Eftir það var fenginn leikari í heimsókn í hesthúsið sem sagði draugasögu. Loks var allri hersingunni keyrt af einkabílstjóra á veitingahús.
Þetta lítur flott út þegar sagt er svona frá þessu. En þetta er allt satt.
Á morgun er svo veislan hennar Önnu Alinu.
Þannig að jólahreingerningarnar eru yfirstaðnar hjá okkur... púfffff.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim