Stefán Sturla Sigurjónsson

01 nóvember 2009

Helgin í stuði

Nú er hrekkjavakan á enda. Það var mikið fjör í gær. Tvær afmælisveislur og stjörnuljós og skemmtilegheit hjá ungunum. Petter guðsonur okkar átti afmæli. Petra var á fundi í Tammerfors allan daginn. Svo hún kom ekki og heldur ekki með mér um kvöldið í 50 ára afmælisveislu vinkonu okkar Stínu Engstöm, leikonu hjá Wasa teater. Í gær var líka auglýst eftir nýjum leikhússtjóra hjá Wasa teater. Sá á að taka við 1.1. 2011 eftir rúmt ár. Ég mun sækja um þessa stöðu. En einnig hefur verið rætt um að ég komi að hugsanlegri stofnun atvinnu barnaleikhúss í Austubotni. Í dag sunnudag förum við hins vegar til mormor og morfar í Molpe í mat.

1 Ummæli:

  • Þann 4:42 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    það er bara næstum óhætt að kalla þig grasekkil hehe :D

    bíð spennt eftir nýjum myndum :)
    og vá hvað kleinurnar voru girnilegar...hafa eflaust vakið lukku hehe

    Kossar og Knúsar
    Ykkar solla

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim