Stefán Sturla Sigurjónsson

15 ágúst 2009

Mumin hittingur í dag.

Í dag verðum við í Mumindalnum sem er í Kærleiksdal ( eða Náðardalnum(Nodendal)) við Åbu (Turku). Þetta er heilmikið ævintýrasvæði út á lítilli eyju. Þar er allt byggt upp eins og Mumindalurinn er teiknaður. Með öllum fígúrunum á ferð og stóra skipið sem mumin pabbi smíðaði stendur þarna. Það er blíðuveður svo við vonum að allt verði frábært. En það tekur fjóra tíma að keyra þangað. Svo við verðum komin seint í kvöld aftur til Sundom.

2 Ummæli:

  • Þann 5:47 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Oh hvað ég væri til í að vera þarna með ykkur. Góða skemmtun :)
    Sandra

     
  • Þann 11:33 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Takk Sandra mín. Næst þegar þú kemur gerum við kannski meira úr ferðum til að skoða og keyra...
    Dagurinn var frábær en þetta er mikil keyrsla á einum degi 8 tímar.
    Þinn pabbsen

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim