Stefán Sturla Sigurjónsson

04 júní 2009

Örlagaþráðurinn.

Hún Petra mín á afmæli í dag.
Ég efast um að nokkur eigi ljósmynd af fyrsta augnablikinu við ástina sína, augnablikinu þegar augun mættust í fyrsta sinn. Það á ég. Hún sat í sal leikhússins í Vasa og var að sjá Bandamannasögu. Ég lék fréttamann sem ljósmyndaði m.a. út í sal. Ein myndin var nærmynd af Petru. Þessi mynd hangir í stofunni hjá okkur.
Finnland var fyrsta landið sem ég heimsótti, þá með Leikfélagi Sauðárkróks. Frá Finnlandi er konan mín og nú bý ég í Finnlandi og held uppá afmælisdaginn okkar. Já við eigum sama afmælisdag. Einhver leyniþráður milli mín og Finnlands. Mín afmælisveisla var íslenska menningarhátíðin í Vasa í vor, en við Petra bjóðum í kaffi á sunnudaginn klukkan sex og vonum að Sandra verði komin til okkar.

1 Ummæli:

  • Þann 3:35 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Til hamingju með afmælið bæði tvö.
    Kv Lulla

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim