Margur verður af aurum api.
Mikið óskaplega tek ég undir orð Birkis Jóns framsóknarmanns. Það er undarleg pólitík að vilja ekki hitta Dalai Lama friðarboðbera. Þann mann sem næstur kemur Gandi. Heimurinn þarfnast sjónarmiða þessa manns. Heimurinn væri betri ef sjónarmið þessa manns væru höfð í hávegum. En íslenskir pólitíkusrar, í grafhýsum halla fjármálaspillinga, eru svo uppteknir að leggja álögur á börn, sjúklinga og gamalmenni (til að rétta fjárhaginn) að þeir gefa sér ekki tíma til að hlusta á boðbera friðarins, Dalai Lama. Nema að þessir íslensku ráðherrar sé að reyna að seilast í vasa kínverskra ráðamanna eftir einhverjum aurum, og verða af því apar.
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim