Stefán Sturla Sigurjónsson

03 maí 2008

Fótboltahelgi í Vörå

Hér sést hvar Adam Thor skorar eitt af fjórum mörkum sínum í fótboltakeppninni í Vörå í dag. Liðið hans Vasa IFK City lent í þriðja sæti í keppninni. Átta lið tóku þátt. Þetta lið er mjög ungt, var stofnað í fyrra og því voru fáir strákar. Þeir náðu að fylla eitt lið, sjö strákar, en það var enginn til skiptanna. Leikið var 2X20 mínútur í 25° hita. Þeir voru mjög þreyttir. Reyndar fengu þeir lánaða tvo stráka frá öðru liði í Vasa þegar fór að líða á keppnina. En eins og áður segir stóðu þeir sig vel og lentu í þriðja sæti. Myndir á myndasíðunni.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim