Stefán Sturla Sigurjónsson

13 maí 2008

Doktors greyið!

Var að lesa skoðunarkönnun í mogganum um fylgi borgarstjórnarflokkanna. Hinn heiðarlegi læknir og borgarstjóri Reykjavíkur ætti að lesa hana líka. Og kannski Kobbi Eff Maggason, kjaftaskur. Aldrei hef ég heyrt önnur eins öfugmæli hjá neinum stjórnmálamanni en yfirlýsingar læknisins í stóli borgarstjóra Reykjavíkur, já og annara honum tengdum. Hann lætur undirtillur sínar koma með yfirlýsingar um heiðarleika sinn, aumingja fólkið. Maður sem er landsþekktur óheiðarleikapólitíkus. Með óheiðarleika sínum og rugli er hann búinn að setja allt í biðstöðu því enginn heiðarleg manneskja trúir eða treystir einu einasta orði frá doktornum. Ef þú treystir ekki samstarfsmanni þínum, ef þú treystir ekki yfirmanni þínum, hvað er þá til ráða? Þú ferð eða hinn. Kvessu djúpa gröf ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að grafa sér í Reykjavík, flokkurinn sem er ábyrgur fyrir öllu ruglinu. Trúa borgarstjórnarklaufarnir í Sjálfstæðisflokknum virkilega því að eitthvað breitist þegar þeir taka við? Þá eru þau enn vitlausari en ég vissi. Því doktorinn er einráðir... það veltur allt á honum, greyinu.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim