Blogg, blogg
Ég er duglegasti bloggari sem þið þekkið, ekki satt? Annars er svo sem fullt að frétta. Jói búinn að vera á spítalanum og heylsan verið mjög rokkandi. Hann er miklu hressari núna. Það er þó útséð að þau mamma þurfa að vera næstu mánuði í Reykjavík. Kallinn er kominn í blóðskilun sem þíðir að hann þarf að fara reglulega þrisvar í viku í tækið.
Ég fór á Hamskiptin a sunnudaginn. Frábær sýning sem ég mæli með að allir sjái. Skemmtilega stílfærð og frá bærleikur allra. Ekki missa af þessari sýningu.
Á laugardaginn bauð Arnar Laufdal mér í mat og á frumsýningu á GM showinu. Bara nokkuð gott og þétt show. Maður sér þó að það vantar þriðja augað og alvöru ljósahönnuð. Þetta er samt flott en ekki mín tónlist. Fyrri hlutinn svolítið seigur en seinni helmingurinn (eftir smókpásu) miklu kraftmeiri.
Fer til Finnlands á fimmtudaginn, reyndar flýg ég til Gautaborgar og keyri þaðan til Vasa.
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim