Stefán Sturla Sigurjónsson

02 maí 2009

Til hamingju Ísland

Til hamingju íslendingar, til hamingju búsáhaladaflokkur með árangur FLOKKSINS. Nú er það þolinmæði sem skiptir mestu máli. Það er ríkisstjórn við völd. Sú sama og er að vinna að nýjum stjórnarsáttmála. Þessi ríkisstjórn þarf ekki lengur að dansa eftir duttlungum Framsóknarflokksins og er því að vinna að framgangi ýmisa þarfamála án undarlegra hugmyndafræði XB. Góður og traustur stjórnarsáttmáli er mikils virði fyrir Íslandinga í dag. Það á hvergi að fúska eða flana að framgangi alvöru mála. Það er enginn töffarabragur eða mafíósastíll á vinnubrögðum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Alvöru fólk sem vinnur heiðarlega að framgangi alvöru ríkisstjórnar.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim