Breika legg... hvað?
Alveg með hreinum ólíkindum. Frumsýning á föstudaginn. Þið trúið því ekki... í dag fór einn leikarinn til læknis vegna þrálátra verkja í hálsi og öxlum. Í stuttu máli hann er með brjósklos milli hálsliða. Þetta toppar enginn. Leikaraliðið meira og minna veikt fyrstu þrjár vikurna, hálft æfingaferlið. Síðan fær einn hjartaslag og nýr leikari var settur inn í staðinn, svo þetta tveimur dögum fyrir frumsýningu... Hann dröslast í gegnum frumsýninguna en annar leikari er byrjaður að undirbúa sig fyrir að taka við hlutverkinu í næstu viku. Fyrst ég er ekki orðinn hjartveikur þá verð ég það ekki... hehehehe.
1 Ummæli:
Þann 2:07 f.h. , Eggert sagði...
- og fyrst þú ert ekki farinn á taugum ennþá, þá ferðu það varla úr þessu.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim