Stefán Sturla Sigurjónsson

03 apríl 2009

Á ekki að skella sér til Finnlands?

Rosalegar undirtekktir vegna auglýsingarinnar um Fífí minn, hér fyrir neðan. Eða hitt þó heldur. Mátti svo sem vita það að þið kunnið ekki gott að meta. Þá er bara best að koma tækinu til Finnlands. Er einhver sem dauðlangar að setjast upp í bíl, fá frítt með Norrænu aðraleiðina og bensín eins og þarf frá Íslandi til Finnlands? Þá bíð ég uppá þetta. Bara að skella sér og sumarfríinu reddað. Keyra frá Danaveldi upp Svíþjóð og yfir til Finnlands. Eða frá Bergen þvert yfir Noreg og Svíþjóð til Vasa. Frábær leið. Fór hana með kallinum honum pabba sl. haust. Hafið samband stefan.sturla@netikka.fi

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim