Guns a Roses fan.
Kæri kallinn minn hann Adam Thor er orðinn 9 ára. Hvað tíminn líður. Hann hefur allatíð verið ákveðinn en ákaflega þægilegur og góður vinur. Réttsýnn er hann og það kom mér og Petru mikið á óvart þegar leikskólakennarar á Sólborg sögðu okkur að hann færi foringi, seinn staðfestu kennarar hans þetta við okkur. Hann var lítilátur og það fer ekki mikið fyrir honum en þannig eru góðir foringjar. Hann hlustar á rokk með mér og fljótlega varð Janis Joplin ein af hans uppáhalds. Eitt sinn þegar hann var fjögra ára var hann með Petru á kjúklingastað í Reykjavík. Spiluð var rokktónlist í kerfinu og það kom að því að lag með Janis var spilað. Þá gall í Adam "mamma Janis Joplin, hlustaðu" gott ef hann þekkti ekki lagið líka. Á næsta borði sátu nokkrir úr popplandsliði Íslands. Petra sá hvað þeir spertu upp augun við að heyra í prinsinum. Nú er það "Guns and roses" sem eru númer eitt hjá Adam.
Elsku kallinn minn til hamingju með afmælið.
Elsku kallinn minn til hamingju með afmælið.
1 Ummæli:
Þann 1:08 f.h. , Nafnlaus sagði...
Innilega til hamingju laaaang flottasti bróðir í heiminum!!!!
Rock on!!
KKv, Solla sys
sakna ykkar :)
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim