Þetta skrifaði Jónas Kristjánsson á heimasíðu sína
Fífl í fílabeinsturni
Geir Haarde var í gær spurður um hnekki á orðspori Íslands erlendis. "Hver segir það," svaraði hann. Fjöldi áreiðanlegra manna segir það. Spurður um hrun peningamálastefnu Seðlabankans, svaraði hann: "Hver heldur því fram." Flestir hagfræðingar eru sammála um það. Spurður um það, svaraði hann: "Við tökum ekki afstöðu til þess." "Við" eru væntanlega hann og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem var við hlið hans. Hroki og heimska Geirs eru einstæð. Hann er búinn að keyra þjóðina til helvítis. Svarar svo eins og hann þekki ekki umræðu samfélagsins og umheimsins. Hrokagikkurinn er fífl í fílabeinsturni.
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim