Stefán Sturla Sigurjónsson

05 janúar 2010

Fáheyrð heimska

Hvað er að gerast á Los flakos??? Um borð hefur svínainflúensan haft afdrifaríkar afleiðingar þegar grísinn fór að kurra og gerði uppreisn. Skútan var á hliðinni og flæddi inn í hana en er nú komin á hvolf. Sorglegt að vita til þess að að forsetinn hlusti á 1/4 hluta áhafnarinnar en ekki hinn stóra meirihluta eða 3/4 hluta sem ekki skrifuðu undir þetta heimskulega plagg um að sökkva skútunni. Nú verður forsetinn að vera samkvæmur sjálfum sér, eins og fyrrverandi hatursmenn hans klifa á þessa stundina og segja af sér, þegar stór hópur þjóðarinnar verður búinn að skrifa nafn sitt á nýtt skjal þess efnis. Skútunni verður ekki bjargað en hugsanlega áhöfninni.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim