Stefán Sturla Sigurjónsson

19 febrúar 2009

Af hvaða sauðahúsi er þetta fólk?

Seint munu Sjálfstæðismenn biðjast afsökunar á fólskuverkum sínum. Sennilega aldrei á ummælum sínum og líklega munu þeir réttlæta valdarán sitt yfir Íslandi með lygum. Hvernig getur nokkur manneskja (lesist kjósandi) trúað eða treyst þessum flokki ósamstæðra tækifærissinna og fyrirgreiðslupólitíkusa? Ég held að pólitískir leiðtogar og framapotarar Sjálfstæðisflokksins skilji ekki mannleg samskipti. Vita ekki hvernig á að nota orðin "ég biðst afsökunar", hvað umburðarlindi er, eða réttsýni og sanngirni. Allt miðast við Sjálfstæðisflokkinn, ekki þjóðina.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim