Stefán Sturla Sigurjónsson

14 apríl 2010

Söngleikarinn Anna

Undanfarnar vikur hefur verið æft stýft í skólanum hennar Önnu. Já nú er það söngleikur sem yngstubekkirnir standa að. Anna var ákveðin í að fá hlutverk, hafði augastað á einu ekki bara vera í kórnum... Með því að tala við kennarann og segja frá því að hún vildi hlutverk og eitt ákveðið sem hún hafði augastað á, var það hennar. Þar syngur hún nokkrar línur ein... og mikið með öðrum... eins og hún útskírir fyrir mér. Þau æfa einu sinni til tvisvar í viku undir stjórn kennara og kirkjukórsstjórans. Sýningin er á morgun 15. apríl klukkan 19:00. Í gær fóru Petra og Anna í búðir og keyptu fallegan rósóttan kjól fyrir hlutverkið, sem verður síðan sumarkjóll. Já vorið... vorið... er komið yndislegt og heitt. Í gær og fyrradag var yfir 15° hiti. Dagurinn í dag ætlar að verða svipaður.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim